søndag den 28. oktober 2012

Kreppuráð

Ef að þið eigið gamla flík sem að þið eruð hætt að nota en er engu að síður úr skemmtilegu efni þá er um að gera að endurvinna flíkina. Lítið á flíkina sem hvert annað efni og sníðið eitthvað handa ykkur sjálfum eða börnunum ykkar. Hér varð gömul HM peysa að 1 kjól, vettlingapari og 2 smekkjum. 



Freyja þvílíkt glöð í nýja dressinu

fredag den 26. oktober 2012

Ingiber afmælisbarn

Ingiber à afmæli í dag. Karlanginn er 31 àrs og í fullu fjöri, enda fòr hann í mjadma adgerd fyrir àri;)

Vid fengum okkur nautakjöt, raudvín og medlæti í kvöldmat eftir ad börnin voru sofnud, mjög ljùft.

Eigid góda helgi!

onsdag den 24. oktober 2012

OF LÖNG bloggpása..


Ég vil biðja trygga lesendur mínar afsökunar á langri bloggpásu.... Nú reyndi ég að standa við að blogga alla vegana einu sinni í viku. 

Margt hefur gerst síðan ég bloggaði síðast. Við fórum í helgarferð til Kaupmannahafnar og hittum mömmu og pabba, Yngvi varð 4 ára og í dag varð Freyja Dís 5 mánaða. 

Helgarferðin var yndisleg í alla staði. Tíminn leið þó aðeins of hratt. Við héldum litla "snemm" afmælisveislu fyrir Yngva, röltum um miðbæinn og áttu eftirminnilega ferð í listasafnið Louisiana.
Ingiber og Yngvi fóru svo í strákaferð á risaeðlusafn sem að var með alvöru risaeðlubeinagrindur frá London. 
Við mamma fengum okkur sömu bakstursbókina og Freyja sýndi mikinn áhuga

Yngvi á risaeðlusafninu
Við mæðgur í strætó
Fengum okkur að borða á ótrúlega skemmtilegum matarmarkaði, Torvehallerne

Litla hetjan stóð sig eins og hetja í lestinni




Við gistum í íbúð á Íslandsbryggju
Flottur arkitektúr leyndist hér og þar;)

Yngvi i-paddari í lestinni
Óvænt afmælisveilsa fyrir 4 ára afmælisstrákinn



Skemmtilega sýning á Louisiana um norrænan arkitektúr

Yngvi með afmælispakka frá Ágúst Högna og co.

Við vorum eins og pólfarar með allan farangurinn:)





Og svo varð Yngvi Snær 4 ára gamall, ótrúlegt en satt:) Yngvi fór með afmælisköku í leikskólann fyrir krakkana og bauð svo vinum sínum í veislu sl. laugardag.Afmælisveislan gekk mjög vel og Yngvi var alveg í skýjunum með daginn.





Afmælisdrekinn og angry birds kökurnar slógu í gegn

Yngvi hjálpaði mér svo að skreyta kex:)

Freyja skemmti sér konunglega í veislunni

Að lokum langar mér að sýna ykkur hugmynd fyrir barnaafmæli... Í stað þess að hafa bara kökur merktar afmælisbarninu á eitthvern hátt þá getur maður líka gert stafabrauð... Það slóg í gegn hjá Yngva:) 






onsdag den 19. september 2012

VINNA VINNA VINNA.....


Það helsta sem er að frétta af okkur þessa dagana er að húsbóndinn á heimilinu er að vinna eins og brjálæðingur þessa dagana. Hann er að fara að skila af sér 3. október þannig okkur hlakkar öllum til að fá smá afslöppunar stundir saman. Við ætlum að skella okkur í helgarferð til Køben 11. október og mamma og pabbi ætla að koma að hitta okkur þar. Alltaf gaman að koma til stórborgarinnar:) Spurning hvort að ég nái að draga fjölskylduna fram hjá nokkrum vel völdum byggingum svo að þetta verði eins konar námsferð í leiðinni!

Fréttir af Freyju Dís eru þær að hún elskar að toga í tásurnar á sér, velta sér um á gólfinu aðallega frá baki yfir á maga og hlær liðlangan daginn af bróðir sínum, þeim báðum til mikillar ánægju. Hún er svo ljúf og góð og vaknar alltaf brosandi , svo yndislegt:)



Hláturmúsin litla:) 


Uppáhalds leikfangið, gíraffinn Sophie

Svo gott að kyssa þessar mjúku kinnar

Íris og Katla að spjalla við Freyju

Tog í tásur er aðalmálið þessa dagana

Helstu fréttir af Yngva Snæ er að við fórum öll á spis sammen aften í leikskólanum hans sem að var ótrúlega huggulegt. Yngvi Snær var svo mikill gaur að hann hljóp um og lék sér og var lítið að spá í okkur en honum fannst samt rosa sport að við værum með honum á leikskólanum.
Mamma Silasar, sem er vinur hans á leikskólanum, stakk upp á því að þeir myndu fá að hittast utan leikskóla og þeir voru alveg í skýjunum yfir því. Vá hvað manni finnst hann vera orðinn stór þegar að hann er að fá að fara einn í heimsókn til vinar síns:)

Hér var verið að syngja saman á leiksvæðinu. 

Yngvi elskar að fá að hafa Freyju hjá sér og vill endilega
að hún hafi gaman að teiknumyndunum hans:)

Læt þetta duga í bili:)

torsdag den 6. september 2012

FESTUGE!!


Fyrir þá sem það ekki vita þá er festuge árlegur viðburður hér í Árósum. Þetta er hátíð sem að nær yfir eina viku þar sem tónleikar, listasýningar og alls kyns menningarlegar uppákomur eiga sér stað víðs vegar um miðbæinn. 

Síðustu helgi fórum við niðrí bæ og eltum uppi skemmtilega viðburði. Ég var meðal annars búin að heyra um risa líkamshluta sem áttu að ganga um bæinn sem að ég var viss um að væri eitthvað fyrir Yngva. Hann var mjög hrifinn en varð svo ansi hræddur þegar að munnurinn gleypti konu í einum bita... úfff ég er ansi hrædd um að þetta eigi eftir að valda honum ansi mörgum martröðum. 





Einnig var stórri umferðagötu lokað í festuge og þar búin til garður með hólum og hæðum og að sjálfsögðu eitt stykki geysir. 


Annars er búið að vera frekar haustlegt hjá okkur þannig að ullar- og flíspeysurnar hafa komið sér vel. En haustið ætlar ekki að stoppa lengi því að næstu helgi verður 20-25 stiga hiti:)








tirsdag den 28. august 2012

MÉR FINNST RIGNINGIN GÓÐ!



Hér hefur rigningin tekið öll völd eins og sjá má á þessari mynd sem er tekin í úthverfi Árósa. Það er svo sem ágætt svona inn á milli, sérstaklega þegar að maður stendur í smá breytingum innandyra:)

Freyja varð 3 mánaða í síðustu viku og að því tilefni bökuðum við Yngvi köku alveg eftir hans höfði. Fótboltakaka með grænu kremi mmmmm....

Hún fór svo í sína fyrstu sprautu á mánudaginn og svo ætlar hún að skella sér með mömmu sinni í bíó í fyrsta skipti á fimmtudaginn, babybio. Nóg að gera hjá 3 mánaða skvísu:)



Yngvi fékk nýtt hjól í síðustu viku svo að nú fær hlaupahjólið hans smá hvíld og við tekur stóra strákahjólið með hjálparadekkjum. Svo vorum við svo heppin að rekast á kassabílakeppni niður í bæ í hans fyrsta hjólatúr og það vakti mikla lukku:)




lørdag den 18. august 2012

TROPICAL HITI Í ÅRHUS

Hér í Århus er 30 stiga hiti sem að okkur þykir nú aðeins of mikið af því góða. Í nótt og aðra nótt verða svokallaðar "tropical nights" þar sem að hitinn er yfir 20 stig alla nóttina... úfff.. spurning um að sofa bara á gólfinu í nótt:) 

Hér koma nokkrar stemningsmyndir frá því í dag og í gær. Ég tek það fram að þar sem að Yngvi er klæddur skyrtu er síðan í gær og þar var hitinn ekki eins mikill:)

 


Yngvi var að sýna Freyju bílana sína og hún sýndi því svo mikin áhug að hún sofnaði:)